Ég kynntist fyrst þessari frábæru tegund árið 2006 þegar ég fékk minn allra fyrsta pug hund hann Garp minn og smá saman jókst áhugin minn á pug tegundinni en meira og ekki leið á löngu þar til ég fór að svipast um eftir öðrum pug hundi en þar sem litlir möguleikar voru hér heima og ekki mikið að gerast í pug ræktun tók ég þá ákvörðun að leita út fyrir landsteina og leita af ræktanda sem ræktar framúrskarandi hunda og eftir þó nokkra leit fann ég ræktandann hans Gríms og verð ég henni ávallt þakklátt fyrir þennan frábæra hund.
Mitt markmið er að rækta verðuga hunda sem eru pug stofninum til sóma, hvað varðar útlit, skap og heilsufar, allir ræktunarhundar í minni eigu eru hnéskelja og hjartaskoðaðir, hægt er að sjá niðurstöður um heilsufar á síðu hvers hunds fyrir sig.
Ég rækta einungis undan hundum sem passa vel saman og skoða ég vel ættir þeirra hunda sem ég hygg að para, ég er mikill aðdándi tegundarinar og geri strangar kröfur til tilvonandi ræktunardýra, fyrst og fremst rækta ég með það markmið í huga að styrkja minn stofn .